Vaknaði upp við brjálað rok og hríð...hríðin hætti nú fljótlega en
rokið er enn í gangi! Þessi tré hérna í Danmörku eru greinilega
ekki gerð fyrir svona veður, brotna bara við minnsta áreiti! Ég
hlakka nú bara soldið til að fá snjóinn, það er e-ð svo kósý. Svo
ég tali nú ekki um ef maður er í jólatívolíinu OG það er
snjór...rómó
Helgin var rosa skemmtó. Á föst.kvöldið fór ég til Sóleyjar þar sem
haldinn var smá saumó, fékk meira að segja hangikjöt í forrétt. Og
já helgina áður fékk ég lambalæri og harðfisk hjá henni....a la
mamma Steina
Á laug. var svo komið að Halloween partýinu sem er alltaf haldið
árlega, rosa mikið af fólki og mjög gaman. Ég og Maggi buðum Helga
og Bjössa heim fyrir partýið og elduðum við öll saman
sushi....ohhh....ég dýrka heimagerða sushiið okkar...verður betra
og betra og betra...já, ég veit ekki hvar þetta endar eiginlega!
Ég var dauð gella með svart hár og máluð svona hvít í
framan....rosalega sæt alveg, Maggi var júdó kappi...og já, Helgi
var....umm...já....umm? og Bjössi var....ummm....? Æ, þetta gengur
ekki alveg nógu vel....en þeir voru allavegana mjög fyndnir
Það skemmtilega atvik gerðist að kortinu í myndavélinni okkar
virðist hafa verið stolið....því ekki hefur það geta dottið
út...þetta er mjög dularfullt mál og mjög leiðinlegt þar við vorum
búin að taka fullt af skemmtilegum myndum....
Í gær komu svo Ingunn og Hannes í mat til okkar og var lambalæri a
la Kolbrún(og mamma) í boði. Það var mjög gott og við borðuðum öll
yfir okkur. Svo á ég eitt lambalæri til góða sem verður eldað í
desember og ætli Sóley og Kobbi fá ekki að njóta þess með okkur
Hið daglega líf gengur sinn vanagang með lærdómi og tilheyrandi.
Svo erum við skötuhjú að fara til Svíþjóðar að heimsækja Elfu
frænku og co.,það er alveg þriggja tíma ferð....verður stuð! Og
ekki má gleyma að á fim. eru MTV verðlaunin....og er það haldið hér
í Köben fyrir þá sem ekki vita. Maður þurfti að mæta í
áheyrnaprufur til að fá miða á þetta. Fannst það soldið low og fór
því ekki! En maður er nú ekki búin að loka fyrir það að rekast
kannski á Justin kallinn svona á förnum vegi....veit að hann ætlaði
að kíkja í Christianiu....best að hanga bara þar allan
daginn....hehe!
En jæja, þetta er nú alveg nóg í bili....