Myndir...loksins!
30.11.2006 12:25:43 / kolbrun

.......


Ég er orðin alltof léleg við þetta...spurning um aðhætta þessu bara!

» 16 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 15:49:00 / kolbrun

ROK



Vaknaði upp við brjálað rok og hríð...hríðin hætti nú fljótlega en rokið er enn í gangi! Þessi tré hérna í Danmörku eru greinilega ekki gerð fyrir svona veður, brotna bara við minnsta áreiti! Ég hlakka nú bara soldið til að fá snjóinn, það er e-ð svo kósý. Svo ég tali nú ekki um ef maður er í jólatívolíinu OG það er snjór...rómó ;)

Helgin var rosa skemmtó. Á föst.kvöldið fór ég til Sóleyjar þar sem haldinn var smá saumó, fékk meira að segja hangikjöt í forrétt. Og já helgina áður fékk ég lambalæri og harðfisk hjá henni....a la mamma Steina :D
Á laug. var svo komið að Halloween partýinu sem er alltaf haldið árlega, rosa mikið af fólki og mjög gaman. Ég og Maggi buðum Helga og Bjössa heim fyrir partýið og elduðum við öll saman sushi....ohhh....ég dýrka heimagerða sushiið okkar...verður betra og betra og betra...já, ég veit ekki hvar þetta endar eiginlega! :D
Ég var dauð gella með svart hár og máluð svona hvít í framan....rosalega sæt alveg, Maggi var júdó kappi...og já, Helgi var....umm...já....umm? og Bjössi var....ummm....? Æ, þetta gengur ekki alveg nógu vel....en þeir voru allavegana mjög fyndnir :D
Það skemmtilega atvik gerðist að kortinu í myndavélinni okkar virðist hafa verið stolið....því ekki hefur það geta dottið út...þetta er mjög dularfullt mál og mjög leiðinlegt þar við vorum búin að taka fullt af skemmtilegum myndum....

Í gær komu svo Ingunn og Hannes í mat til okkar og var lambalæri a la Kolbrún(og mamma) í boði. Það var mjög gott og við borðuðum öll yfir okkur. Svo á ég eitt lambalæri til góða sem verður eldað í desember og ætli Sóley og Kobbi fá ekki að njóta þess með okkur :D

Hið daglega líf gengur sinn vanagang með lærdómi og tilheyrandi. Svo erum við skötuhjú að fara til Svíþjóðar að heimsækja Elfu frænku og co.,það er alveg þriggja tíma ferð....verður stuð! Og ekki má gleyma að á fim. eru MTV verðlaunin....og er það haldið hér í Köben fyrir þá sem ekki vita. Maður þurfti að mæta í áheyrnaprufur til að fá miða á þetta. Fannst það soldið low og fór því ekki! En maður er nú ekki búin að loka fyrir það að rekast kannski á Justin kallinn svona á förnum vegi....veit að hann ætlaði að kíkja í Christianiu....best að hanga bara þar allan daginn....hehe! ;)

En jæja, þetta er nú alveg nóg í bili....

» 14 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 16:13:34 / kolbrun

Dúdúrú...


Takk kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar um daginn :D

Þá erum við komin tilbaka frá Berlín. Alltaf gaman að kíkja þangað. Fórum með Einari og Guðnýju og vorum frá laug. til þriðj. Það var auðvitað tekinn túristarúnturinn á þetta þar sem þau höfðu aldrei komið áður. Svo var farið út að borða á hórugötunni, alltaf jafn gaman að fylgjast með þessum elskum ;) Þetta er ótrúlega skrítið, þetta er svona fín gata með flottum veitingastöðum og börum....og svo eru þær bara þarna við götuna með mittisveskin sín...frekar fyndið! Svo fékk ég mér uppáhaldskokteilinn minn...var voða sniðug og skrifaði uppskriftina í simann minn....en það eyddist svo óvart úr símanum :( Man samt alveg hvað er í honum, þarf bara að finna út með hlutföllin. Ég verslaði líka smá. Keypti mér jakka, kósýpeysu, belti og bol.

Það er búin að vera þvílík stór-verkefna törn í skólanum...aðeins að róast núna. En það gengur bara mjög vel, er alveg að fíla þetta :) Það er bara smá vesen núna í sambandi við hvar og hvenær ég eigi að taka vettvangsnámið á næstu önn. Fer vonandi að rætast úr því....

Og já, blessuð tölvan skilaði sér úr viðgerð...fullfrísk...vonandi. Maður er samt svo stressaður eftir svona hremmingar!

En það bíða mín þarfari hlutir en að blogga...nefnilega að taka til. Íbúðin er á hvolfi....vegna tímaleysis og gestagangs. Þarf að kippa því í liðinn.

Later....

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 21:50:08 / kolbrun

Vandræði!


Okey...

Ég ætla ekki að kaupa mér nýtt hjól....tími því ekki...

Nýja tölvan mín crashadi!!!! Já,já...voða gaman! Það hefur örugglega verið galli í harðadiskinum. Svo er búið að vera tómt vesen að koma henni í viðgerð....hefði reyndar fundist sanngjarnt að fá nýja tölvu....hel..Opin kerfi!!!! :evil:
Frábært að kaupa sér tölvu af því að maður er að fara í fjarnám...og svo bilar hún eftir viku!
Núna er hún semsagt farin út í rassgat..til Birkerød og verður þar næstu vikuna...

Fyrir utan tölvumálin gengur lífið sinn vanagang.
Ég að nýta alla daga illa!!!
Það er búið að vera frábært veður hérna alveg síðan ég kom út, en ég heng alltaf inni allan daginn. Það er vegna þess að ég get ekki vaknað fyrr en svona 12 og svo fæ ég mér að borða og fer í sturtu og svona...kíki svo í tölvuna og fer e-ð að hangsa við lærdóminn.
Þessu ætla ég að breyta! Ég ætla að vakna kl. 8:30 og vera farin að læra kl.9, þá er ég kannski búin að læra svona 14 ef það er ekki e-ð sérstakt verkefni...og þá get ég nýtt daginn!

Svo er maður að fara að byrja í aerobic hérna á kolleginu og vonandi líka yoga :)

Fjörið hérna í Danmörku fer rólega af stað...en ég er samt búin að:

fara tvisvar á frebar...en ekki hvað?
fara á Strkið...
fara í Fields...
fara í innflutningspartý...
bjóða fólki í mat...
spila Popppunkt og borða super nachos...
fara á fyrsta alvöru fótboltaleikinn minn(semsagt ekki á Laugardalsvellinum)...Brøndby-Esbjerg...

og var að koma frá tøseaften með nokkrum stelpum sem eru með Magga í bekk...
Gaman að vera boðið að koma því það reynir svo lítið á dönskuna mína þegar ég er í svona fjarnámi. Þarna var ég, ein dönsk, ein norsk og ein sænsk...þannig að það reyndi soldið á mann.. hehe ;)

Næst á dagskrá er að halda afmælið mitt hátíðlega...hvort það verða nokkrar stelpur í mat eða partý er ekki alveg ákveðið
Svo erum við örugglega að fara til Berlínar...Kristbjörg ertu með? ;) Ætlum bara að kíkja í 3 daga eða svo. Vinur hans Magga á afmæli.

Segið mér e-ð sniðugt :D

» 19 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 23:09:03 / kolbrun

Í sól og sumaryl...


Hellú :D

Já þá er maður bara komin heim aftur...heim í litla kotið sitt :)
Það er búið að vera alveg frábært veður síðan ég kom, örugglega svona 25 stig og glampandi sól. Ég er svo ánægð að ná smá sumri því það var ekki upp á marga fiska á klakanum...

Það er mjög erfitt að læra þegar veðrið er svona gott, en ég reyni að kíkja smá í bækurnar á hverjum degi. Það tekur alltaf smá tíma að koma sér í rútínu....

Maður er nú búin að versla smá síðan maður kom...svo er förinni heitið í MAC þegar maður fær námslánin...já þau koma sér sko vel ;) Svo er ég svona að spá hvort ég eigi að splæsa á mig nýju hjóli...það liggur nú kannski ekki á því en það er bara svo gott tilboð.
Svo er ég búin að eignast þessa fallegu tölvu. Það kom skyndilega upp, tölvan sem ég ætlaði að nota var ekki alveg að virka greyið....og maður getur nú ekki stundað fjarnám nema að eiga tölvu...

Mér líst bara mjög vel á námið og hlakka til að takast á við þetta...þarf aðeins að bæta við mig smá sjálfsaga, þá er þetta komið ;)

Jæja...ætla að fara sinna gestinum mínum, Ingunn er í heimsókn. Vildi bara láta vita af mér ;)

Heyri í ykkur...ble...

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 19:34:14 / kolbrun

Fréttaskot ;)


Allt ágætt að frétta :)

Það er nú þannig að á sumrin á maður að gera e-ð allt annað en að hanga í tölvunni...ekki satt!?

Núna fer vinnan að klárast og við tekur skólinn, byrja 4. sept. Fer svo aftur til DK 9.sept.

Verum í bandi :D

.....Ný könnun.....

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 01:37:09 / kolbrun

Versló


Ekkert svosem að frétta af mér. Bara vinna, vinna, vinna!!! Græða, græða, græða!!! Spara, spara, spara!!! ;)

Nú fer að líða að verslunarmannahelginni...og mín auðvitað búin að redda sér fríi í vinnunni :D
Þá er bara spurningin...hvert á að fara??? Setti inn skoðanakönnun sem þið megið endilega svara! Ef þið viljið bæta einhverju við þá skelliði bara í eitt komment ;)

Og ef þið hafið séð sólina....endilega látið mig vita!

Fleira var það ekki.

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 20:09:25 / kolbrun

Já!!! :)


Kominn tími á blogg kannski :D

Ég er semsagt komin á klakann...og ætla að vera hérna þangað til í byrjun september, vááá hvað ég á eftir að vera hérna lengi...soldið skrítið!!! Ég verð svona lengi vegna þess að mín er komin inn í Kennó!!! :D :D og þarf ég að vera á landinu í skólabyrjun...ég ætla að taka þetta sem fjarnám svo það fari ekki á milli mála...ætla sko að vera áfram í Danmörkunni!
Vonandi verður þetta það rétta...krossa fingur ;)

Annars er bara alvaran að taka við á morgun, byrja að vinna! Það verður nú bara fínt, líst vel á þetta bara. Þarf að vinna eins mikið og ég get í sumar....borga "smá" námslána skuld....ohhh, hef aldrei áður skuldað e-ð svona!

Við skelltum okkur norður um helgina. Ég var út í garði mest af tímanum, við vorum að gróðursetja sumarblóm í garðinum hennar ömmu...gera hann fínan eins og hún var vön að gera. En maður kíkti nú líka aðeins út á lífið á laug.kvöldinu. Fórum í partý og svo á ball, dró Heiðrúnu frænku með mér. Hið skemmtilegasta kvöld verð ég að segja, Krókurinn klikkar ekki ;)

Ætla að halda áfram að einbeita mér að leiknum, er að horfa á hann hérna í tölvunni. Sáu þið markið áðan hjá Englendingum?? Ekkert smá flott! Og akkurat núna voru Svíar að jafna...heyrðu ég verð bara með lýsingu á leiknum í beinni....hehe ;)

Er alltaf með sama númerið, verðum í bandi :D

» 11 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 20:49:44 / kolbrun

Gleðitímar :)


Ég er veik...er að skána samt, ætla að fara í vinnuna á morgun. Ég er bara að verða eins og sumir krakkarnir á leikskólanum...alltaf með hor í nös ;) Á bara eftir að vinna tvo daga...mamma, Guðmundur og Katrín eru að koma á föst.!!!!! :) :) :) Get ekki beðið!!!
Við ætlum að gera fullt skemmtilegt....mest hlakkar mig til að fara í Legoland!

Áslaug vinkona var hjá mér um helgina. Tókum túristarúntinn....samt eins og ekta danir, því ég gat lánað henni hjól, langbest að skoða borgina þannig! Svo keypti hún föt eins og óð manneskja...ég var bara aðstoðarkona í þetta skiptið....þar sem ég á ENGAN pening! :(
Á föst. var sushi hjá okkur, sama fólk og venjulega...búin að vera nokkur sushi kvöld upp á síðkastið. Áslaug var að smakka í fyrsta skiptið, stóð sig ögn betur en Hanna...mátti þó ekki miklu muna ;)
Á laug. var svo skellt í sig nokkrum kokteilum(ásamt Kristbjörgu) og svo var haldið í bæinn á Jazzhouse. Gleymdi að fá myndir hjá Áslaugu þannig að þær koma víst seinna.
Á sun. fórum við Áslaug svo á Spiseloppen, borðaði ALLT af disknum mínum!!! Geðveikur matur þarna!

Á mán.kvöldinu bauð ég svo þremur dönskum stelpum sem voru með mér í lyfjafræðinni í mat. Þeim fannst maturinn minn algjört æði og vilja fá að koma aftur...hehe!! :)
Ég vildi endilega ná að bjóða þeim áður en ég færi heim yfir sumarið, svo ætlum við að reyna vera duglegar að hittast næsta haust....vá það er svo skrítið að segja þetta: næsta haust!!! Ætla ég virkilega að vera svona lengi á Íslandi!!! :$ Held að þetta verði síðasta sumarið mitt heima...maður er að missa af besta tímanum hérna úti!

Maggi var sofnaður klukkan tíu, ætli ég drífi mig ekki bara líka í háttin...les kannski smá. Mæting í vinnu kl. 9 í fyrramálið.

Hlakka svo til að fá múttu og co. í heimsókn...get örugglega ekki sofið næstu tvær nætur...reyni...

:D

» 13 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 20:22:13 / kolbrun

Rigning...


Skemmtilegir dagar að baki :D

Hanna lenti í Köben þann 18. maí og náði akkurat að sjá þegar Silvía steig á sviðið. Maður vissi nú alveg að hún kæmist ekki áfram þó svo maður héldi kannski smá í vonina. Mér fannst þetta flott hjá henni! Og hnédansinn var alveg að gera sig ;) Flott að við gáfum bara skít í þessa keppni....hún er líka alveg fáránleg eftir að henni var breytt! Við eigum aldrei eftir að komast áfram í aðalkeppnina! Ég meina Tyrkland komst áfram með superstar gelluna en Belgía sat eftir....fannst það flottasta lagið!

Á föstudag komu svo Þórey og Hildur og hittu okkur Hönnu í Fields....þar var verslað smá :)
Svo um kvöldið fórum við út að borða og svo beint á tónleika með Belle & Sebastian. Þetta voru alveg frábærir tónleikar! Eftir það var það kollegibarinn, spjall og nokkrir öllarar. Gistum svo allar í slotinu í M-inu!

Á laugardaginn skelltum við okkur svo til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Lund. Þar var karnival í gangi, e-ð sem er haldið á 4 ára fresti....þannig að það er alltaf mikil eftirvænting hjá fólki. Það var skrúðganga sem fór í gegnum allan bæinn...svona pallar með sitt þema, blindfullir háskólakrakkar! Svo var svona afgirt hátíðarsvæði þar sem var fullt að gerast!
Um kvöldið fórum við svo út að borða, ég, Þórey, Hanna og Hildur(frænka hennar Þóreyjar). Fórum á ítalskan stað og fengum mjög góðar pizzur.
Svo var stefnan sett á júró partý...en ekki hvað! Fundum ekki húsið strax og það var mígandi rigning...hárið allt í klessu :) Þegar við loksins komum var mikil stemming, það var eurotrash þema og því allir voða skrautlegir. Við reyndar ömurlegar i venjulegum fötum, en fengum refsingu fyrir það....urðum að vera með dömubindi límt á okkur allt kvöldið...haha! :)
Þegar ljóst var að Finnar hefðu unnið trylltist allt!!! Við líka ;) Fólk stóð upp á borðum og stólum...og var Nína auðvitað sett á fóninn og allir sungu með....tvisvar! ;) Þá komu nágrannarnir alveg brjálaðir enda örugglega aldrei orðið vitni af þvílíkum látum!!! Við fórum því bara í bæinn ásamt úrvalsfólki og héldum fjörinu áfram. Svo var eftirpartý og komum við ekki heim fyrr en undir morgun. Mjög gaman :D

Sunnudagurinn var svo frekar rólegur eins og við var að búast. Fór aðalega í heimferð til Köben...lestin var í einhverju fokki og því var þessi ferð mjög löng....
Við fórum svo í hjólatúr í Christianiu....því þangað hafði Hanna litla aldrei komið. Svo var matreitt sushi og supernachos og Friends skellt í tækið. Slökun.....
Hanna fór svo um hádegið í dag og ég lagðist í leti....því það var rigning úti....

Á miðvikudaginn kemur svo Áslaug vinkona í heimsókn og verður fram á mán. Þannig að það er nóg að gera!!!

Og góða veðrið kemur vonandi aftur til Köben fljótlega....

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 23:04:11 / kolbrun

†

Guðný Friðriksdóttir

f. 15.júní 1934

d. 7.maí 2006

 

 

 

Elsku amma mín. Ég trúi ekki enn að þú sért farin frá okkur, að þú komir ekki með útbreiddan faðminn á móti mér næst þegar ég kem í sveitina. Það eru nú ófá sumrin sem ég hef eytt hjá ykkur afa í sveitinni og þaðan á ég mínar bestu minningar. Þær eru of margar til telja þær upp hér en munu varðveitast í hjarta mínu um ókomna framtíð. Þú varst og verður alltaf mín fyrirmynd og ég vona að guð gefi mér sama styrk, dugnað og örlæti og þú bjóst yfir.

Elsku amma mín. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig, en ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar.  Ég er svo þakklát fyrir að ég skyldi ná að sjá þig og vera hjá þér áður en þú kvaddir þennan heim. Það er afa líka ómetanlegt að að hann náði að vera hjá þér og halda í höndina á þér þegar yfir lauk, rétt eins og þú hefðir beðið eftir honum.

Ég elska þig.

Þín Kolbrún.


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 18:25:29 / kolbrun

Sumarið er alveg að koma....

Búin að slaka vel á eftir þessa rosa törn um páskana, er reyndar búin að vera vinna mjög mikið eins og venjulega en maður nær nú alltaf að slaka á á milli. 

Fórum í sushi til Bjössa og Helga...næstum því orðin vikulegur atburður :)  Sem er ekki slæmt...þar sem þetta bragðast alltaf svo rosalega vel...núna eru líka allir orðnir svo sleipir í sushi gerð þannig að allir hjálpast að.  Spurnig um að við gerum sushi þarna á sunnudeginum kannski...stelpur(Hanna, Þórey, Hildur)....hvernig hljómar það? :D  Hlakka ekkert smá til þegar við hittumst...og það er sko alls ekki langt þangað til!!!

Núna er sumarið alveg að koma...farið að hlýna mjög svo hér í Köben, búnir að koma nokkrir alveg æðislegir dagar...þá þjótum við Kristbjörg út í göngutúr...hehe!

Það er e-ð svo margt skemmtilegt framundan.  Stelpurnar að koma(tónleikar, spjall, góður matur og hvítvín....hvernig hljómar það).  Svo koma mamma, systir og Guðmundur til okkar í byrjun júní(legoland, tívolí, góður matur og endalaust fjör)...við förum svo samferða þeim til Íslands!!!!   Veiii...og þá er planið hjá okkur Magga að keyra hringinn...eigum bara eftir að redda okkur bíl :D

Næstu dagar fara í það að græja umsóknirnar fyrir KHÍ og HÍ....

Hafið það gott!


» 17 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 00:24:08 / kolbrun

Þá koma dagar og þá koma ráð

Hélt að þessir páskar yrðu nú hálf einmannalegir sökum þess að Maggi og Óskar væru í Berlín...en nei það rættist bara heldur betur úr þessu :D

Á miðvikudagskv. fórum við í smá partý til Einars og Guðnýjar...spiluðum og drukkum öl, svo var farið á reggie bar og drukkið enn meira og svo fórum við stelpurnar saman niður í bæ...til að dansa :)  Kom heim um 6...

 

Á fim. fóru strákarnir svo til Berlínar þannig að ég var ein í kotinu.  En þá hafði Elfa frænka ákveðið að skella sér yfir til Köben með krakkana og ég kíkti á hana um kvöldið, þau gistu hjá vinkonu hennar sem á heima hérna á kolleginu, þannig að það var ekki langt að fara!  Daginn eftir vaknaði ég kl. 7 um morguninn til að taka á móti Sæunni systur hans Magga, hún var að koma úr flugi en flugið hennar til Íslands var ekki fyrr en um hádegið þannig að hún ákvað að kíkja bara í heimsókn...verður nú að stoppa lengur næst :)  Svo komu Elfa og krakkarnir yfir og svo var von á Einari og Þóreyju.  Þau voru komin seinnipartinn og þá var bara farið að hafa sig til því við áttum pantað borð á Spiseloppen sem er í Christianiu.  Það er alveg frábær staður og mjög góður matur...og ekki dýr miðað við gæðin!  Svo var haldið heim södd og sæl og partýinu komið í gang. Gestir voru: Við þrjú auðvitað, Hemmi og Rakel(vinir Einars), Kristbjörg, Andri, Elli, Sara(fóru snemma) og Elfa frænka.  Það var alveg svaka stuð hjá okkur!  Reyndar fékk ég aftur augnsýkingu þannig að það er nokkuð ljóst að sú sem ég fékk um daginn var ekki endilega út frá kvefinu.  Held að þetta sé nýja meikið mitt.  Því þegar Rakel hreinsaði í kringum augun þá löguðust óþægindin starx...og hún þreif semsagt ekki augnblýantinn, augnskuggan eða maskarann....þannig að eftir stendur meikið!  Ég var samt aftur orðin svona rosalega rauð í augunum en sá aftur skýrt.  Við fórum svo í bæinn á Jazzhouse(ég eins og útgrátin) og dönsuðum fram til 6...eða ég og Elfa....Þórey og Einar fóru snemma heim vegna óviðráðanlegra aðstæðna og Hemmi og Rakel drifu sig heim um 3. 

 

Daginn eftir var fólk í misgóðu ástandi en við drifum okkur samt niður í bæ að fá okkur að borða og sleikja sólina því það var geðveikt veður!  Þórey og Einar tóku svo lestina aftur yfir.  Ég fór til Kristbjörgu og borðaði með þeim og fór svo til Elfu og þeirra í spilakvöld.  Daginn eftir vaknaði ég mjög seint og fór að leita að páskaegginu mínu þar sem Elfa hafði verið svo góð að fela það fyrir mig :)  Fór einn leitunarrúnt en fann það ekki...var orðin það óþolinmóð að ég hringdi og fékk vísbendingu um hvar það væri...og að það sæist ekki í það!  Fann það þá um leið og gat loksins farið að úða í mig óhollustu ;) 

Maggi og Óskar mættu svo á svæðið og við borðum dýrindismáltíð saman.  Svo fór liðið að streyma í partýið(afm. hans Óskars).  4 bandbrjálaðir danir þar á meðal, leist nú fyrst ekkert á blikuna þar sem þeir voru orðnir þónokkuð ölvaðir þegar þeir komu, en allt fór svona nokkuð vel fram.... við enduðum öll á einhverjum stað niður í bæ og var ég komin heim upp undir morgun....

Núna er Óskar farinn heim og við tekur vinna á morgun...ekki alveg að nenna!  Ég er alveg búin á því eftir helgina...ekki meira djamm fyrir mig á næstunni!!!

 

Vonandi áttu þið góða páska, gleðilega páska!!! :)

Hvaða málshátt fengu þið???

 

Fullt af myndum komnar inn!!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 00:40:00 / kolbrun

Páskar 2006


Þá er ég bara orðin ein í kotinu :( Maggi og Óskar farnir til Berlínar. Verð reyndar ekki mikið eon eftir allt saman...sem er gott!!! Elfa frænka sem býr í Svíþjóð ákvað að skella sér til Köben...þannig að ég get hangið með henni. Og svo eru Þórey og Einar væntanleg á morgun og ætla að fá að gista....þannig að það má búast við einhverju tjútti annað kvöld ;)
Var nú samt helv...öflug í gær, kom heim kl. 7 í morgun! Við fórum til Einars og Guðnýjar og borðuðum þar svo var spilað og drukkið....svo komu Kristbjörg og co. og svo fórum við öll í bæinn.... Ágætis kvöld alveg hreint!

Maggi og Óskar koma svo seinnipartinn á sun. og þá ætla ég að vera tilbúin með páskamáltíðina....nautafille og tilheyrandi :D Svo verður e-ð húllumhæ um kvöldið þar sem Óskar á afm. á mán.
Þannig að já, ágætis páskar framundan...

Hef nú bara ekkert meira að segja ykkur að þessu sinni...þannig að lengra verður þetta ekki!

Góða nótt...

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 12:46:25 / kolbrun

Sunnudagur


Ekki mikið búið að gerast síðan síðast...

Er ennþá með kvef...fór samt í vinnuna fim. og föst. alveg hunslöpp...þarf bara svo þvílíkt að halda á peningunum!!! Þetta fer vonandi að lagast, er búin að taka því mjög rólega um helgina...bara búin að vera heima. Erum reyndar að fara í mat til Kristbjörgu og Andra í kvöld...og horfa saman á Prison Break :) Geggjaðir þættir!

Svo er það bara vinna, vinna...mán., þriðj. og mið....og svo er komið páskafrí :D Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera um páskana...Maggi er að fara til Berlínar...þannig að ég veit ekki alveg hvernig ég ætla að hafa þetta, kannski skelli ég mér til Svíþjóðar...þarf aðeins að hugsa þetta...
Óskar, vinur hans Magga er að koma á þriðjudaginn...og með honum kemur smá sending að heiman...nammi og páskaegg :D :D

Veðurlega séð er allt að gerast hérna í Köben! Það er alltaf að hlýna meira og meira...reyndað búið að rigna mikið...en... Reyndar leiðinda rok í dag...ég og Maggi fórum áðan út að kaupa okkur smørrebrod...e-ð voða fínt greinilega því það var aðeins dýrara en við bjuggumst við, förum ekki aftur þangað í bráð. Var samt mjög gott, bara alltof dýrt fyrir fátækt fólk!

Jæja við erum að pæla í að skella okkur í ræktina núna...eða göngutúr...aðeins að hreyfa á okkur rassinn ;) Svo gerði ég díl við Magga í gær...á morgun byrjum við í nammi- og kókbindindi...og hananú!!!! Ég hef nefnilega komist að því að það gengur ekkert fyrir mig að ætla að borða nammi og kók bara um helgar...því þá kemst ég alltaf á bragðið...og get ekki hætt :( Þannig að við ætlum að prófa hvernig þetta gengur....reyndar ætlum við alveg að borða nammi um páskana...ég meina maður verður!!! ;)

Jæja ætla að fara hætta þessu rausi....ekki alveg skemmtilegasta færslan til þessa...

Bæjó!

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7